<$BlogRSDUrl$>

2006-09-27

vaaaaaaaaaá! 

var í partíi með living legend of our times.

Krystof Penderezky stjórnar Sinfóníunni á tónleikum á morgun. Það eru ekki mörg tónskáld á lífi í heiminum þekktari og virtari en hann. Tónskáldafélagið bauð til móttöku í kvöld, að sjálfsögðu mætti ég. Ekki víst að það gefist tækifæri til að hitta manninn aftur. Held hann hafi ekki komið til Íslands síðustu tuttugu árin eða svo. Það vantaði slatta af tónskáldunum, við vorum ekki nema svona fimmtán í allt, með Penderezky og frú. Kem til með að lifa lengi á þessu. Tvímælalaust sá stærsti á mínu sviði sem ég hef hitt. Kuul.

2006-09-26

gekk 

hörkuvel á tónleikunum, tvöfölduðum áheyrendafjöldann síðan um daginn og það þrátt fyrir mörgþúsundmanns í miðbænum, þar inni í eiginlega alla mína vini, fjölskyldu og kunningja. Ýmislegt hefur aldrei gengið betur, Ljóðið hennar Elínar (líklega erfiðasta verkið á efnisskránni) small algerlega og Hrafnamál Hreiðars Inga - tja, gengu betur en í vor. Ýkjulaust.

Þó nokkrir sem hvöttu okkur til að taka þetta upp og gefa út, það væri að minnsta kosti ekki enn ein platan með sömu lögunum. Veit nú samt ekki hvort maður fer að hamast í upptökum, nóg samt að gera. Síðustu tónleikarnir með þessu verða víst líklega ekki í nóvember heldur 21. okt, fyrsta vetrardag. Samt ekki alveg búið að negla dagsetninguna. Kemur í ljós.

muuuu 

eru allir orðnir svona þreyttir á leiðindunum í kommentakerfinu mínu? eða er kannski bara ómögulegt að komast í gegn eða eitthvað? Engin komment við síðustu 7-8 færslur! Hvar eru allir?

(hmm, sé þetta núna. Kemst ekki í gegn. Og ég sem hélt að það vildi enginn tala við mig lengur...)

tónleikarnir 

í kvöld, já, maður kann eiginlega varla við að plögga. En semsagt, ef þið ætlið ekki að ganga með Ómari niður í bæ í kvöld, þá eru tónleikarnir okkar í Hásölum við Hafnarfjarðarkirkju í kvöld, gengið inn um Tónlistarskólann. Um klukkutíma prógramm, bæði ný verk (annar flutningur á Mýrarlaginu eftir hana Rúnu, mjöög fallegt) og svo nokkrar íslenskar kórperlur sem fólk ætti að kannast við.

Þeir sem ætla að ganga þurfa þó engan veginn að örvænta, við syngjum prógrammið einu sinni enn, í draugalegu umhverfi á Eyrarbakka. Tvö af verkunum passa afskaplega vel inn í það andrúmsloft allt saman. Þetta verður líklega í nóvember, við erum ekki alveg búin að negla dagsetningu en þið verðið látin vita, ójá.

2006-09-25

 

og það var splæst í nýtt lyklaborð í dag. Litlasystir ætlaði að vera þvílíkt almennileg og gefa okkur sitt gamla en það reyndist þá vera serial en ekki usb. Cubinn er bara ekki með neinu serial tengi. Einu sinni átti ég eitthvað serial to usb millistykki en ég held alveg örugglega að ég hafi hent því.

En ég er amk. komin aftur á mína tölvu. Gottgott.

sjónin 

við Finnur fórum til augnlæknis í morgun, hann í fjórða eða fimmta skiptið en ég fyrsta. Sjónin hefur ekki verið mæld í mér síðan ég var krakki, var þá með fullkomna sjón, núll á báðum.

Not so, no more, no.

Augnlæknirinn okkar er í Mjódd. Frá stofunni hans fókuserar hægra augað á mér úti á bílastæði en það vinstra í Kópavogi.

Fékk gleraugnarecept upp á skjávinnugleraugu, hægra +2,5 og vinstra +4,25. Má samt nota ræflana mína úr apótekinu, (bæði gler +1,25) svo lengi sem ég fæ ekki hausverk og vöðvabólgu af ofreynslu og stífni. Læknirinn trúði mér varla þegar ég sagðist vel geta lesið heilan reyfara spjaldanna á milli án þess að þreytast of mikið. Heldur að minn heiftarlega hái sársaukaþröskuldur bjargi mér í því samhengi, ég er örugglega alltaf með hellings höfuðverk, ég finn bara ekkert fyrir honum...

imogen heap 

er skemmtilegur músíkant. Gaman að vera að detta inn í unglingamúsíkina í gegn um unglinginn sinn.

2006-09-24

mætt 

heim eftir fínustu Egilsstaða/Eiðaferð (nei, ég náði ekki Kárahnjúkum, lét minn góða rektor um þá í staðinn).

Tónleikarnir tókust mjög vel, áheyrendur náðu að verða jafn margir og söngvararnir, það er að segja ef við teljum klikkaða ljósmyndarann, tónleikahaldara og leigusöngvara með, hann söng sko ekki með í söngleikjalaginu með klappinu og stappinu og allri hinni leikrænu tjáningunni hjá okkur, settist þá niður og getur semsagt talist með áheyrendum.

En sem sagt, gekk fínt að syngja, ljómandi góður salur, búið að biðja okkur um að koma aftur að ári og aldrei að vita að það verði að veruleika. Kannski við förum þá ekki á fjalltíma, allir sem vettlingi gátu valdið í sveitinni voru víst á fjalli. Gistingin snilld, heldur þægilegri en síðast þegar við fórum austur, gistum þá á Eyjólfsstöðum hjá Ungu fólki með aðalhlutverk - (eða var það hausverk) og þar mátti sko hvorki reykja né drekka, allt svo voooðalega heilagt, ekkert þægilegt að komast inn í bæ og stemningen trykket eins og Daninn segir.

Héldum ljómandi aðalfund, sveimérþá ef okkur tókst ekki að veiða gjaldkera í stað þess gamla sem er búinn að vera skráður gjaldkeri þrátt fyrir að vera í námi í Kanada og hafa ekkert sungið með í tvö ár. Tókst líka að troða öllum kórnum í einhver hlutverk, nokkrir í heimasíðunefnd, skandall að kórinn eigi ekki heimasíðu, ekki einu sinni myspace svæði, fjölmiðlafulltrúi kosinn, búninganefnd og örugglega eitthvað fleira.

Kom heim til að uppgötva að lyklaborðið mitt er handónýtt, líklega borðið sem ég setti í uppþvottavélina hér fyrir svona einu og hálfu ári, hefur virkað fínt hingað til en það er nú svo sem ekki skrítið að eitthvað klikki í rafeindum eftir rúmlega hálftíma vatnsverk. Oh well, nýtt fer beint frá skattinum. Fattaði ekki fyrr en seint og um síðir að ég gæti nú stungið fermingargjöf barnsins í samband og bloggað, búin að vera bæði blogg- og ekki síður kommentaþyrst í dag. Kommentin bíða nú samt morgundagsins, klukkan fullmargt og langur dagur á morgun.

Örugglega að gleyma einhverju mjög merkilegu. Já, plögg um þriðjudaginn. Verða snilldartónleikar. Svo verður líklegast líka hægt að heyra þá á Draugasetrinu í október/nóvember, frábært að fá tækifæri til að flytja þetta svona oft. Spurning hvort við ættum að henda okkur í upptökur, ættum að kunna þetta þokkalega vel!

2006-09-23

Egilsstaðir 

í góðu yfirlæti hjá Þorbirni, Helgu og dætrum. Tónleikar á Eiðum á eftir, vonandi verður þokkaleg aðsókn. Aðalfundur Hljómeykis á eftir, barði saman efnahagsreikning í gærkvöldi, mesta furða hvað hann stemmdi vel. Mér hefur ekki tekist að týna nema um 1400 krónu nótu, ekki illa af sér vikið.

2006-09-21

og svo 

kom það fyrir aftur, ég er gersamlega að leka niður eftir ræktina. Var búin að borða alveg þokkalega í dag og drekka nægan vökva (meðal annars um 800 ml á meðan á rækt stóð).

Spurning hvort ég finni fyrir votti af endorfínflæði, lýsir það sér þannig að mann hiti í alla liði? Svo sem ekkert óþægilegt, en að þurfa að hafa svona fyrir ánægju sem er álíka og að borða góðan súkkulaðimola...

Eiðar 

tónleikar hjá Hljómeyki á Eiðum á laugardaginn, klukkan 16.00. Meðal annarra verka frumflytjum við lag sem verður í Mýrinni. Hörkuflott lag, hlakka til.

Endurtökum síðan tónleikana á þriðjudaginn 26. 20.00 í Hásölum við Hafnarfjarðarkirkju. Fyrstu tónleikar með nýja stjórnandanum. Verður spennandi. Já, gaman líka.

Ég er að minnsta kosti á leiðinni til Egilsstaða annað kvöld, Freyja kemur með, tónleikar og aðalfundur á laugardag eftir tónleikana, svo heim á sunnudeginum.

bögg 

dagur, að minnsta kosti að hluta til. Svona frá hálftvö til fimm. Þurfti að ná í krakkana snemma, var búin að láta færa tímann hans Finns til um kortér til að ná að fara og syngja í jarðarför. Allt í fína með það. Nema að húfan hans finnst hvergi, trúlega verið tekin, allt of mikil töffarahúfa. Súrt. Ætlaði svo ekki að finna Freyju, var ekki í stofunni sinni, hélt að hún væri í tölvustofunni og barði hana alla utan en enginn svaraði. Kom svo skottan, sem betur fer.

Á leiðinni með hana í selló uppgötvaði ég að hún er búin að fá sýkingu í eyrað síðan í aðgerðinni í gær, ofursúrt. Gat ekki látið hana ganga heim úr sellótímanum eins og ég ætlaði þannig að ég skipaði henni að fá frí síðasta kortérið, þá næði ég að sækja. Skammaði stelpurófu líka fyrir að hafa ekki æft sig nóg í vikunni. Uss uss uss. Í tíma með Finn, gekk reyndar nokk vel, hann lak ekki nema minimal í gólfið og þóttist vera svoooo þreeeyyyyttur. Út, sækja Freyju, bruna heim, pirra sig á silalegum ökumönnum á undan mér (hvað er með að keyra á 10? Lenti á tveimur svoleiðis).

Skila börnum, jarðarför gekk reyndar mjög vel, ekkert bögg þar.

Heim og ná í Freyju, keyra í dans, náðist auðveldlega. Nema hvað þegar ég er komin niður í Sporthús er hringt í mig úr STEFi, voða skemmtilegt að fá að vita að maður hafi fengið 67 þúsund krónum of mikið í síðustu NCB úthlutun og það verði dregið af mér næst. Muuuu.

Reyndar smá saga að segja frá því. Útskýringin á úthlutuninni var lag af jóladiski Ellenar og KK, skráð að þau hefðu notað útsetningu eftir mig af sálmalagi. Ég var reyndar steinhissa, hafði ekki haft hugmynd um það. Öfundaðist náttúrlega þvílíkt út í poppbransann að fá svona upphæðir fyrir plötur, ef ég fengi 67 þús fyrir eina útsetningu, hvað sækti þá öll platan.

Nemahvað, sonur Ellenar og Eyþórs er í tónfræði hjá mér. Pabbinn með í tímum. Ég náttúrlega minnist á hvað ég hafi verið ánægð með systkinin að nota þessa útsetningu, ég hafi aldrei nokkurn tímann fengið svona há ncb gjöld. Eyþór hváir við, kannast ekki alveg við málið. Svo fara þau náttúrlega að garfa í þessu og upp kemur að vegna þess að þau voru ekki búin að skrá lögin hjá STEFi var eina tengingin við plötuna lag sem þau tóku (útsett af sjálfum þeim) lag sem ég átti skráða útsetningu við.

Þannig að allur fjárans diskurinn var skráður á mig.

Ég á sko inni að þau taki eitthvað frá mér :-D

En það jákvæða í dag var að ég skilaði af mér píanótríóinu. Sem er kúl. Og sit hér með rauðvínsglas. Sem er gott.

2006-09-20

eyrun 

búið að vera tómt vesen með eyrun á börnunum mínum hinum yngri tveimur. Nú er Finnur líklega útskrifaður (bankítimbur) og fröken Freyja lét taka rör úr sér í morgun, vonandi í síðasta skiptið. Mikið væri ég til í að þetta væri bara búið allt saman.

2006-09-19

Var 

nærri búin að verða vitni að slysi í morgun, hefði getað orðið ljótt. (Heyrðu, bíddu, betra: Varð vitni að nærri því slysi í morgun)

Var að koma inn á hringtorgið við Nóatún, Ánanausta megin frá. Sé þá mótorhjól sem beygir út af frá innri akrein og svo Landroverökumann sem var nærri búinn að keyra mótorhjólamanninn niður.

glætan að börnin mín fái leyfi til að taka mótorhjólapróf. Aldrei í lífinu!

2006-09-18

aaahhh 

nokkrir uppáhaldsbloggararnir mínir komnir inn á Mikka. Nú hætti ég að missa af færslunum hjá þeim :-)

jú jú 

samkvæmt frétt á blaðsíðu 10 í Fréttablaði dagsins er einmitt meiningin að „skipulagsbreyta“ Sumartónleikum í Skálholtskirkju. Sumartónleikarnir eru nú reyndar sjálfseignarstofnun, heyra ekki beint undir kirkjuna. Og hvers vegna þurfa þeir endilega að gera það? Kirkjulistahátíð er þegar haldin, (reyndar bara annað hvert ár), í Hallgrímskirkju, þarf aðra?

Sumartónleikar fá góðan styrk frá kirkjunni, í staðinn hafa verið samin fjöldamörg kirkjuleg tónverk, stór hluti þeirra lifir áfram með þjóðinni og jafnvel úti um heim.

ég er ekki smá fegin að vera ekki að syngja í Eddu I, undir (æfinga)stjórn söngmálastjóra. Hefði átt afskaplega erfitt með að mæta á æfingu í dag.

Hvernig stendur annars á því að það er ekki einn einasti stafkrókur um brottrekstur organista Skálholtskirkju og þessi mál hin, í Morgunblaði allra landsmanna? Spyr sá sem ekki veit.

2006-09-17

ljótu 

lætin með Skálholtsorganista. Stend hundrað prósent með Hilmari Erni og ég held reyndar að það að losna við hann sé hluti af mun stærra plotti, yfirtöku á Sumartónleikum með meiru. Verður ekki látið átakalaust. Hvers vegna þarf alltaf að gína yfir öllu? Sjá menn ekki hvað þeir eru að baka sér svakalega miklar óvinsældir?

(já, þetta er megnið af kjaftasögunni frá því um daginn. Virðist vera mikið til í henni)

maraþonæfing 

í Hljómeyki, tónleikar á Eiðum næstu helgi og í Hafnarfirði þriðjudaginn eftir. Bættum nokkrum lögum við efnisskrána í dag, var fullstutt. Skemmtilegt.

Hlaupanótan 

Hér er tengillinn á Hlaupanótuna með undirritaða sem hlustanda vikunnar, (talandi um athyglissýki). Fyrst er smá Beethoven, þá kynning á þættinum og svo la moi. Algerlega óklippt, hikstað á hinu og þessu og svo var kötturinn aðeins að skipta sér af.

2006-09-16

stundum 

koma einhverjir sjálfskipaðir vitringar í fjölmiðla

og tala fjálglega um bloggmiðilinn, hvað fólk sé nú firrt og athyglissjúkt sem sé að þessari vitleysu.

Einn söngfélagi okkar Hallveigar talaði einhvern tímann um hvað þetta væri nú ógeðslegt, fólk að bera sínar innstu tilfinngar á torg.

Ég spurði hann hvort hann hefði einhvern tímann lesið bloggsíðu. Nei, það hafði hann nú ekki gert. Og hafði náttúrlega ekki græna glóru um alla hlutina sem maður skrifar EKKI um, því þeir koma alþjóð ekkert við.

Kannski erum við athyglissjúk, ekki ætla ég að dæma um það. En mýtan um fólk sem einangrar sig, dettur út úr mannlegum samskiptum og situr bara fyrir framan tölvuna og pikkar passar að minnsta kosti ekki við mig og mína vini. Við höldum að minnsta kosti jafngóðu sambandi við okkar gömlu vini og kunningja og áður. Munurinn er frekar sá að nú þekkjum við fullt af fólki (og þykir vænt um) sem við annars hefðum ekki haft hugmynd um að væru til, hvað þá meira. Og við látum ekki við tölvuskjá sitja, heldur hittumst in the flesh, so to speak.

Buðum bloggvinkonu og fjölskyldu til dæmis í mat í vor, bara svona út í bláinn, heppnaðist ljómandi vel, nú í kvöld endurguldu þau greiðann og ég efast um að við látum þar við sitja. Hver er kominn til með að segja að þetta sé verri leið en önnur til að eignst góða vini?

Kærar þakkir fyrir frábært kvöld í kvöld. Þar til næst!

var 

svo þreytt í gærkvöldi að ég fór að sofa klukkan hálftíu. Þá átti dóttir mín eftir að fara út að vinna (var að passa fyrir Hallveigu frekar seint í gær) Vaknaði svo klukkan 8, endurnærð. Ætti að hafa smá úthald í matarboð í kvöld (var það ekki klukkan 6?)

ekki orð 

á ekki eitt einasta orð yfir þessu hér. Hlustið til enda (aðeins yfir í næstu frétt), ósvífnin í embættismanninum!

Minnir helst á það sem við lentum í fyrir rúmum tveimur árum. Mun skárra hérna megin þó, en við urðum samt nógu pirruð.

2006-09-14

fundur #3 

Finns fundur búinn. Auðvitað tókst mér að falla í bekkjarfulltrúann, mundi ekkert eftir því að síðast þegar ég var bekkjarfulltrúi gerði ég ekkert en var ég með samviskubit allan veturinn. Jæja, ég get að minnsta kosti verið tengiliður, skrifað póst á alla foreldra og boðað hingað og þangað og látið vita um hluti. Góð í því.

hananú 

búin að setja niður alla tónana í píanótríóið. Þá er „bara“ að setja inn styrkleikabreytingar og hraðatákn, og búa til partana. Klárast um helgina.

Enn verið að hræra í kommentakerfinu mínu, nú fékk ég eitt með rugluðum íslenskum stöfum og get ekki farið inn og breytt neinu. Eins gott að það komi eitthvað af viti út úr þessu hjá þeim í enetation!

Fundur #2 

Fífu bekkur í morgun. Ágætt, fámennt reyndar en góðmennt. Varð ekki glöð yfir að það er hætt að hafa hraðferð og hægferð í bekkjunum (fyrir utan níundabekkjarvalið, reyndar), of margir foreldrar búnir að rífast í skólastjórnendum um að þetta sé ólöglegt og setji börnin þeirra í tossabekki. Óþolandi. Fæ reyndar ómögulega skilið þetta, þar sem allir græða á getuskiptingu í ákveðnum fögum, ekki síst þau verr stöddu, þar sem þau fá að vinna á sínum eigin hraða í stað þess að þurfa að vera alltaf á eftir. Það er ekki einu sinni eins og þetta sé neitt tossabekkjardæmi, þar sem þetta var bara í ensku og stærðfræði, allir voru saman í hinum fögunum. Grrr.

Tvær mömmur buðust sjálfar til að vera bekkjarfulltrúar. Fínt.

Kom heim og þá var unglingurinn búinn að taka til í eldhúsinu og raða úr uppþvottavél. Yndisleg.

Annars heyrði ég svo vonda kjaftasögu í gær að ég er enn að jafna mig. Vona að þetta sé ekki rétt :-O

2006-09-13

fundur #1 

Freyju fundur í dag, ég fann fína leið til að komast auðveldlega frá þeim, fer bara á seinni hluta fundarins hjá stelpunum, labba hvort sem er með Finn í skólann, mættur 8.50, næ 40 mínútum af fundi. Eins í fyrramálið í Fífu bekk, þá er bara bekkjarfundurinn hans Finns eftir. Klippi mætingu niður um svona 60% en næ örugglega megninu af dæminu samt.

2006-09-12

sorrí 

Gurrí og Farfugl, þið náðuð ekki næstu fjölmiðlauppákomu minni. Á morgun verð ég hlustandi vikunnar í Hlaupanótunni, Tala um sinfóníutónleikana á föstudaginn var (sagði náttúrlega fimmtudaginn af gömlum vana) og svo um Jenúfu, Janacekóperuna góðu. Hlustið endilega á rausið í undirritaðri :-D

ekki smá 

flott þetta hér Grúppan búin að vera lengi í uppáhaldi.

Lio 

2006-09-11

fundir 

Það er ekki gott að eiga börn á öllum skólastigum grunnskóla. Núna í þessari viku eigum við að mæta á kynningarfundi fyrir börnin sem hér segir:

MIÐSTIG (5.- 7. bekkur) miðvikudagur 13. sept. kl. 08.05 – 09.30.

UNGLINGASTIG (8. – 10. bekkur) fimmtudagur 14. sept. kl. 08.05 – 09.30.

1. bekkur bíósalur miðvikudagur 13. sept. kl. 19.00 – 21.00 OG FRAMHALD! fimmtudaginn 14. sept. kl. 19.00 – 20.00 í bekkjarstofunum.

vitið þið, ég er svei mér ekki viss um að við mætum á þetta allt. Hvað í ósköpunum þurfa þau að segja okkur í þrjá heila tíma um fyrsta bekkinn? Að minnsta kosti hvað sem við sem þriðjaskiptisforeldrar vitum ekki fyrir?

þvælingur 

á mér næstu helgar, tja, núna næst er það eina reyndar löng kóræfing en helgina þar á eftir fer Hljómeyki í tónleikaferðalag austur á Eiða og ég lengdi ferðina í annan endann til að geta heimsótt bróður minn og mágkonu, verður snilld. Svo helgina þar á eftir verður stefnan sett á París, hvar við Jón Lárus og Fífa kíkjum meðal annars í heimsókn til dömu einnar fínnar. Get ekki beðið.

(vá hvað mér tókst að setja marga hlekki hér inn. Best að birta færsluna og sjá hvort þetta kemur allt rétt út - allir handgerðir. Og ég sem er að skrifa þetta úr pésénum niðri í Suzuki og gæti notað hlekkjatakkann. Mín pínu sein...)

nýja eos vélin 

(fann hjá Begga sem stal héðan) Mæli með að þið smellið á myndina til að sjá betur merkingarnar á tökkunum. Mætti alveg notast við suma þeirra...
new-eos
Originally uploaded by monkeyc.net.

2006-09-10

berjamór 

Fór með krakkana upp að Ölfusvatni í berjamó í dag. Hef nú reyndar alveg lent í berjamó í betra veðri, rigning og rok eru ekki alveg ídealið. Náðum þó í eitt gott berjaskyr. Nú þarf bara að kaupa rjóma.

Fékk svo góðan gest í gullköku (að sjálfsögðu breytum við nafninu héðan í frá, miklu flottara en sjónvarpskaka) og kaffibolla. Hún lánaði mér ljóðabókina Þokur eftir leyniskáldið Jón Kára. Kíki á það, hlýt að fá inspírasjón.

Kom svo í ljós að mamma þekkir leyniskáldin vel. Á meira að segja langa grein úr Vikunni frá því á þessum tíma, verð að ljósrita hana og lesa (skal taka kópíu fyrir baun, ef hún vill)

2006-09-09

brúðkaupsafmæli 

17 ár, takk fyrir. Ekkert að dala neitt, samt.

Sjóferðin 

um daginn var frábær. Báturinn er talsvert kraftmikill, þarna vorum við á tuttuguogþremur hnútum. Báturinn kemst hraðar, en það er ekki endilega ráðlegt. Veit ekki alveg hvað hann kemst á fullu stími.

Hlakka til að fara í aðra svona ferð, næsta sumar.

Kjölsog
Originally uploaded by hildigunnur.

baggalúturinn 

er ekki alveg búinn að missa það. Þrátt fyrir köntríið. Þrátt fyrir að hafa tekið upp samstarf við Bó (sem er náttúrlega gersamlega ófyrirgefanlegur error).

2006-09-08

Tonleikar 

frábærir Sinfóníutónleikar áðan. Berlioz stykki sem ég hlustaði á mér til óbóta fyrir svona tuttugu árum, Grieg sönglög (yndisleg söngkona, pínu kvefuð samt) og svo Scheherazade eftir Rimsky-Korsakoff. Ohh, það er bara svo mikið snilldarstykki. Verst að það var voðalega mikið af óvönu fólki á tónleikunum sem var alltaf að klappa milli kafla. Tókst samt ekki að skemma upplifunina. Lokakaflinn er bara fáránlega magnaður.

Heim, og þá hafði pósturinn komið með ruslfæðið mitt, loxins. Fiskurinn enn í tollafgreiðslu samt, þannig að þetta er bara ruslið. Kúl.

2006-09-07

púslið 

nýja fimmtudagspúslið er að komast í skorður. Nú eru bæði yngri börnin í hljóðfæratímum á fimmtudögum, Freyja á Engjateigi klukkan 2 og Finnur í Sóltúni klukkan kortér yfir 2. En að ég geti notað sömu ferðina, neeeii, er búin að fá leyfi til að Freyja fái frí í hálfum síðasta tímanum, sæki hana klukkan 13.40, keyri á Engjateiginn, skil hana eftir, bruna aftur í Austurbæjarskóla og sæki Finn í íþróttatíma. Get víst ekki ætlast til að barnið fái frí í öðrum íþróttatíma vikunnar. Hann fær sinn hálftíma og svo sækjum við Freyju á Engjateiginn þegar Finnur er búinn. Dansinn byrjar síðan í næstu viku, byrjar klukkan 16.25. Sikksakk á bílnum. Sé ekki að þetta myndi ganga á strætó, jafnvel þó hann væri á 10 mínútna fresti.

2006-09-06

freyði- 

vínið verður ekki drukkið í kvöld, er ég hrædd um.

En þetta var nú samt ekkert skammarlegt.

úff! 

ekki boðar þetta nú gott :-O

ætli 

meiningin sé að taka Dani á sálfræðinni eins og Frakkana um árið? Jói Friðgeir blastar út þjóðsöngvana en notar spariþjóðsöng Dananna en ekki hversdagssönginn, sem almennt er notaður í upphafi leikja og við önnur álíka tækifæri.

Þá er að vita hvort það virkar eins vel og síðast. Mjög hóflega bjartsýn, reyndar. Kannski maður heiti á þetta einni freyðivínsflösku eins og við Jón Lárus gerðum 1992 þegar Danir urðu Evrópumeistarar. Virkaði fínt þá. (nei nei, ég ætla nú að heita á íslenska liðið í þetta skiptið)

hljómsveitin 

við Fífa mættum á áhugamannabandsæfingu áðan. Fífa var búin að biðjast undan veru í strengjasveitinni í Tónó í vetur, ég sem var ekkert sérlega ánægð með vinnuna í þeirri sveit í fyrra sagði: já, en þá verður þú að koma með mér í S.Á. í staðinn. Unglingurinn lýsti upp: Má ég það???

miklu betri þjálfun fyrir hana. Fimm æfingar og tónleikar, sinfóníur og konsertar og forleikir og allt. Í fyrravetur í strengjasveitinni spiluðu þau eitt verk allan veturinn. Ekki beinlínis til þess fallið að þjálfa lestur, eða þá bara auka áhugann. Neibbs.

Svo mættum við á æfingu áðan. Þrælskemmtilegt. 8. sinfónía Beethovens, Mozartiana svíta eftir Tjækofskí. Verstur fjárinn að tónleikarnir eru þann 1. október. Þá verðum við óvart ekki á landinu.

en hei! Mætum galvaskar á æfingu 3. október í staðinn. Tvennir tónleikar í viðbót í haust. Þrennir til fernir í vor. Munar svolítið miklu frá einum í strengjasveit TR.

2006-09-05

fiskur 

og hitt dótið líklega tollafgreitt í dag. Hringdi í mig hálffúl kona frá TVG, ekki sátt við að hafa verið sökuð um að skrifa eitthvað rugl. Gat bent henni á að tala við rétta aðila á Fiskistofu og nú sendir hún mér póst um að málið sé komið í farveg. Kannski höfum við mac&cheese með laxi á morgun og jell-o í eftirmat :-D

það er gott 

að fá sér sólberjaböku í morgunmat. Jamm. Best að fara samt með alminlegt nesti í kennsluna. Já, eða fá mér eitthvað gott hjá henni Dóru í mötuneytinu. Ógurlega hollt allt saman, verst að hún á til að nota ferskan kóríander og engifer.

2006-09-04

debug 

keyrði eitthvað debug dæmi á enetation, nú sýnir árans kerfið að minnsta kosti réttan fjölda kommenta. Svo er bara að vita hvort ástandið skánar eitthvað. (efast um það, reyndar)

ljósmyndarinn 

kominn og farinn, mynd af mér í eldhúskróknum með pilsner í tebolla (nennti ekki að hita te), ég búin að senda uppskrift og síví á Gestgjafann. Verður gaman að sjá útkomuna.

hana, þá langar mig í te. Best að setja yfir vatn og hella pilsnernum úr bollanum.

2006-09-03

seinni frídagurinn 

þessa helgi leit svona út:

Skotist að kaupa spænskar orðabækur fyrir unglinginn (hvernig stendur eiginlega á því að barnið getur ekki farið að læra mál sem orðabókafríkin á heimilinu eiga þegar bækur yfir? Við erum mjög dugleg við að segja nei við alls kyns bókakaupum en orðabækur stöndumst við ekki. Hér eru til örugglega 8 enskar af ýmsum gerðum, 4-5 danskar, 3 ítalskar, 2 íslenskar, 2 franskar, þýsk, tékknesk og rússnesk. Og núna sem sagt 2 spænskar)

Sigling um sundinblá, Jón Lárus er í siglingaklúbbnum í Samskipum og við getum fengið Litlafellið lánað, reyndar ennþá með skipstjóra, pungaprófið ekki alveg í höfn. Sigldum að mynni Hvalfjarðar, þar voru veiddir einir 10 fiskar, nokkrir í viðbót komu á færi en var sleppt. Enduðum á því að sigla kring um Viðey, að Þerney og svo aftur í bæinn. Gátum ekki kvartað undan veðrinu, gat eiginlega ekki verið betra.

Heim með aflann, skipt um föt, kvöldmatur hjá tengdamömmu, stórmeistari lambalæris með meðlæti. Mmmm. Stakk svo af til að fara á kóræfingu í kvöld.

Þar kom upptakari og Mugison og við kláruðum að taka upp seinna lagið - ef lag skyldi kalla. Effektar, eiginlega frekar. Ég fékk að leika sög (sem sagt svona - spilað á sög, ekki sagað), við öskruðum og létum öllum illum hljóðum. Verður ekki smá spennandi að heyra.

Verður ágætt að fara í vinnuna til að hvíla sig smá.

Annars kemur hér ljósmyndari í fyrramálið til að taka mynd af heita brauðinu. Eins gott að það fáist snittubrauð á mánudagsmorgnum í bakaríum. Hmmm.

framhald 

hundar! 

plott 

plott plott plottiplott

vá hvað ég er með óxla gott kommbakk planað

he bloddí he he he!

2006-09-02

dagurinn 

var frekar bissí, bókaveisla hjá Nönnu í morgun ásamt Birni Friðgeiri, ganga kring um Vífilsstaðavatn með extended family, (hitti formanninn og bar undir hann samsæriskenningar miklar, held að það hafi verið samsært (tja, eða einsært, kannski) til að henda mér út úr nefnd einni ákveðinni, formaður vissi ekkert en varð fúll og ætlar að ganga í málið), veisla hjá móðursystur, við Hallveig skutumst frá til að syngja við eitt brúðkaup, aftur í veislu, glæsilegir afgangar handa okkur, skemmtilegt lið, takk fyrir okkur. Heim. Skipta um föt (aftur). Farið og tínt eitt og hálft kíló sólberja hjá Ester vinkonu. Heim. Einn bjór. Hér sit ég.

Lítur út fyrir að morgundagurinn verði minnst jafn upptekinn. Helgarfrí hvað?

Komin 

úr bókahlaðborðinu, tær snilld. Fullt eftir samt, örugglega 5 heilir kassar. Nú verður sko lesið.
bækurnar frá Nönnu
Originally uploaded by hildigunnur.

2006-09-01

heyrðu já 

skemmtilegt viðtal sem hún Gurrí tók við Önnu í Viku vikunnar. Keypti blaðið aldrei þessu vant (sorrí Gurrí, en ég les voða lítið af tímaritum, ekki heldur Séð og heyrt, Hér og nú, Birtu, Mannlíf, Bleikt og blátt, bara Lifandi vísindi, Gestgjafann og Familie Journalen)

Anna segir meira að segja frá fyrstu „kynnum“ okkar. Skondið.

vá, hvað 

ég er hrikalega fegin að hafa haft afsökun til að vera ekki með í frumflutningi á Eddu óratoríu eftir Jón Leifs á Norrænum tónlistardögum í október.

Sá nefnilega nóturnar í dag.

Þetta er 

alveg hryllilega gott nammi. Fífa rakst á það í Nóatúni í dag, ég er í stórhættu á að verða algerlega húkkd.
aero bubbles
Originally uploaded by groc.

upptakan 

búin, lagið komið inn. Verður svona rørende móment í myndinni. Náðum ekki inn hinu dótinu, átti að vera meira effektar en eiginlegt lag/útsetning, getur verið að við tökum það á sunnudagskvöldið í staðinn. (N.B. þetta gekk ekkert illa, bara ákveðið vesen á einum kórfélaga og svo höfðum við ekki kirkjuna nema í rúman klukkutíma)

Tökum lagið örugglega með þegar við förum austur eftir nokkrar vikur, tónleikar á Eiðum laugardaginn 23. sept. Gengur, þar sem lagið er eftir Mugimömmu en ekki Mugison. (erum að endurtaka tónleikana Tónlist eftir kórfélaga, sko).

Fífa fór í fyrsta söngtímann sinn í dag. Áfangi.

aleinn 

lítill maður labbaði aleinn i skólann í dag. Átti að fara með vini sínum sem býr á móti en kvartaði yfir því að sá hefði bara hlaupið af stað og ekkert beðið eftir sér. Vildi nú samt ekkert að ég væri neitt að fara á fætur og fylgja, gæti þetta bara alveg sjálfur.

mamman pínu með hjartað í buxunum, verður að viðurkennast.

En allt fór þetta nú vel og hann var ekkert seinn, spurði kennarann í lokin.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?