<$BlogRSDUrl$>

2007-03-09

frumflutningur 

já, það er frumflutningur hjá mér á morgun (laugardag). Kennaratríó úr Suzukiskólanum spilar glænýtt píanótríó á tónleikum klukkan 15.00 í Laugarneskirkju. Allir velkomnir, lofa léttum og skemmtilegum tónleikum. Nýja stykkið mjög áheyrnarvænt :-D

Efnisorð: ,

2007-03-06

ess 

á, a.k.a. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna er í verulega skemmtilegu verkefni núna. Carmina burana, með óperukórnum Cortezinn stjórnar. Hræddi okkur á æfingunni áðan með því að segja ekkju Carls Orff myndu koma á tónleikana þannig að eins gott að við stöndum okkur. Engin happa/glappaspilamennska í þetta sinn, þó maður hafi nú stundum látið það duga. Æfingabúðir framundan og allt. Úff.

En gaman verður þetta.

Efnisorð: ,

2007-02-11

hálsbólga 

gerði vart við sig í dag, eiginlega á tónleikunum (var að spila, ekki syngja, þannig að það gerði nú lítið til). Þýddi hins vegar að ég sleppti kóræfingu í kvöld. Eins gott að þetta verði orðið gott í upptökunum um næstu helgi.

tónleikarnir gengu annars bara fínt. Sólistarnir glönsuðu og það var heilmikill kraftur í bandinu líka. Ekki nema minimal klúður, maður biður ekki um meira.

Týndi síðan öðrum uppáhalds eyrnalokknum mínum einhvers staðar áðan. Vona að það hafi verið hér heima :-(

Efnisorð: , ,

2007-02-10

enn er komið að 

tónleikum hjá mér, nú á morgun heldur Sinfóníuhljómsveit áhugamanna tónleika í Seltjarnarneskirkju klukkan 17.00. Einsöngvarar með sveitinni verða Signý Sæmundsdóttir og Bergþór Pálsson, einleikari á píanó Ingunn Hildur Hauksdóttir. Lofa góðri skemmtun.

Veit annars ekki hvort nýja heimasíða hljómsveitarinnar er komin í gagnið. Það var um daginn samkeppni um lén fyrir okkur, kom fullt af tilbrigðum við amateursinfo.is, ahugasinfonia.is og hitt og þetta.

Fyndnasta tillagan fannst mér sú þar sem stafir voru veiddir út úr nafni sveitarinnar - Sinfóníu Hljómsveit Áhuga Manna og stungið upp á sham.is. Held samt að viðkomandi tillöguhöfundur hafi ekki gert sér grein fyrir því að það væri eitthvað athugavert við lénið...

Efnisorð:

2007-01-29

Gekk bara 

bærilega áðan, varla hægt að segja að tónleikarnir hafi verið sérlega vel sóttir en þó alls ekki vandræðalega fátt. Gæti trúað að það hafi verið betri heildarmynd á þeim núna heldur en í sumar. Pínu vandræðagangur þegar við áttum að setjast, gleymdist að taka frá bekkina sem við ætluðum að nota, þannig að við þurftum að setjast vítt og breitt. Ekki það, það var nóg af sætum fyrir okkur...

Efnisorð:

This page is powered by Blogger. Isn't yours?