2007-03-09
frumflutningur
já, það er frumflutningur hjá mér á morgun (laugardag). Kennaratríó úr Suzukiskólanum spilar glænýtt píanótríó á tónleikum klukkan 15.00 í Laugarneskirkju. Allir velkomnir, lofa léttum og skemmtilegum tónleikum. Nýja stykkið mjög áheyrnarvænt :-D
2007-03-06
ess
á, a.k.a. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna er í verulega skemmtilegu verkefni núna. Carmina burana, með óperukórnum Cortezinn stjórnar. Hræddi okkur á æfingunni áðan með því að segja ekkju Carls Orff myndu koma á tónleikana þannig að eins gott að við stöndum okkur. Engin happa/glappaspilamennska í þetta sinn, þó maður hafi nú stundum látið það duga. Æfingabúðir framundan og allt. Úff.
En gaman verður þetta.
En gaman verður þetta.
2007-02-24
í gær
þegar ég hefði átt að vera á kafi í að undirbúa matarboð settist ég náttúrlega frekar við tölvuna að fikta. Og þetta kom út.
2007-02-19
jibbíhúrraliggalái
var í þvílíkri fýlu seinnipart dags, viðgerðagaurinn hjá Apple gat ekki fengið hljómborðið mitt til að tengjast tölvunni. Fór með þau skilaboð í kennsluna og tölvuna alveg eins heim.
Nema hvað, ég átti gamalt MIDI tengi frá MotU (Mark of the Unicorn, þeim gömlu góðu). Applemaðurinn sagði mér að prófa að fara inn á netið, skrá mig hjá MotU og sækja rekil sem hæfði tenginu og stýrikerfinu. Gerði þetta þegar ég kom heim, reyndar eftir að ég reyndi að sækja patch til M-Audio (sem þjónustar Evolution hljómborðin). Var búin að pirrast á því í góða stund þegar ég fór inn á MotU síðuna. Þar rataði ég beint á rekilinn, sótti hann, keyrði upp, tengdi hljómborðið gegn um MIDI, hrærði pínu í MIDI setup stillingunum og innsláttarstillingunum og voilá. Allt virkar.
ekki lengur í fýlu. Nibb.

2007-02-18
upptökurnar
búnar, snilld. Náðum öllu upp nema einu lagi (í gær, allt sem við ætluðum að taka í dag fór inn) en það er þegar komið út á diski með okkur þannig að það gerir minna til.
Á morgun fer tölvan ásamt hljómborði til læknis. Kannski voru mistök að kaupa fyrstu útgáfu af þessari tölvu, hefði átt að bíða eftir bugfixaðri útgáfu. Hmmm. En þetta SKAL ganga. Nái ég ekki hljómborðinu í samband eru tölvukaupin út í hött.
Gott að vera enn með þá gömlu uppsetta, þarf bara að stinga henni í samband, mér þykir vægast sagt ekki skemmtilegt að vera tölvu- og netlaus, þó það sé ekki lengi.

jahá
ekki varð af bloggi í dag/gær. Upptökur allan daginn, (tæpir 9 tímar). rjúka heim að setja á mig andlit, fann ekki kjólinn sem ég ætlaði í (Væla lánaði ég þér svarta kjólinn með fjólubláu röndinni á bakinu?) Nevermænd, silfurkjóllinn did the trick.
árshátíð LHÍ var málið, fínn matur og vín, flottur veislustjóri, hljómsveitin frekar sad (risastórt eldhúspartí frammi á gangi, enginn eftir inni að dansa/hlusta á hljómsveitina)
Spurning um að fara að sofa, framhaldsupptökur á morgun, best að reyna að vera í formi. Meira síðar.

2007-02-16
komin með
barnaóperuna mína á stafrænt form. Verstur fjárinn að það sést bara ennþá betur þar hvað upptakan er ömurleg. Litirnir fáránlegir og hljóðið eins og í gegn um kodda.
Þarf að koma henni aftur í flutning, það er ljóst.

Efnisorð: tónlist
2007-02-14
fundarstjóri
var fundarstjóri á aðalfundi Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna í kvöld. Það er skemmtilegt. Aldrei verið fundarstjóri áður.
Á næsta aðalfundi Tónskáldafélagsins má fastráðinn fundarstjóri passa sig (ég veit þú ert að lesa ;-)) Við stelpurnar fáum skoh bara að vera fundarritarar venjulega, næst væri ráð að skipta um hlutverk. Karlmiðað svolítið ennþá...
Annars vantar okkur fólk í hljómsveitina. Sérstaklega fiðluleikara, víóluleikara og brass, allir samt velkomnir. Ef einhver lesenda minna er með fjórða stig eða hærra í hljóðfæraleik, endilega hafið samband. Gerir ekkert til þó þið séuð ekki í æfingu og hafið ekki snert á hljóðfærinu í óratíma, það kemur bara á næstu æfingum. Allt í lagi þó maður nái ekki öllum tónunum, besta trikk tuttispilara er að kunna að feika. Þetta er hörkugaman og við erum að gera bara mjög góða hluti. Kommon, ppl!

2007-02-03
video-dvd
veit einhver hér hvaða fyrirtæki tekur að sér að flytja gögn af vídeóspólum yfir á dvd? Ég hélt að ég myndi kannski geta gert það sjálf á nýju tölvunni en það er náttúrlega bara analog audio in en ekki video in tengill á henni. Er að spá í barnaóperuna mína, þó upptakan sé reyndar skelfileg. Myndi helst vilja fá bæði venjulegt dvd til afspilunar í sjónvarpi og svo tölvufæl (avi eða álíka).
Svo langar mig líka að yfirfæra tónleika sem við sungum einu sinni, verk PDQ Bach.

2007-02-01
stefjakeppni
Hlaupanótunnar er í fullum gangi. Hann Halldór Bjarki litli (tja, ekki svo litli lengur, reyndar, 14 ára) frændi minn á stef í 8 liða úrslitum. Hlustið á það hér, svona 2-3 mínútur inn í þáttinn.
4 stef voru spiluð í Hlaupanótu gærdagsins, dreift jafnt í gegn um þáttinn. Mér fannst fyrstu tvö bera af, öll þó góð. Hlakka til að heyra stefin í þætti dagsins. Uppfæri færsluna kannski, eftir þáttinn.
já og ég tók ekki þátt í keppninni ;-)