2007-02-25
ég held
að ég sé að fá hálsbólgu. Ekki gott. Smá slöpp, ekkert að ráði, röddin var ekki alveg eins og hún átti að sér á æfingu áðan, ekki með hita eða beinverki sem betur fer (vonandi ekki flensan :-O). Finnur er með kvef og hita og verður örugglega heima á morgun.
Að sjálfsögðu hef ég ekki nokkurn tíma til að verða veik. Styttist í próf hjá suzuki- og hafnarfjarðarkrökkum og bara 4 tímar eftir hjá lhí liðinu. Verst að ég treysti mér ekki í óperuna í kvöld, sem þýðir að ég missi af sýningunni. Það er súrt.

Efnisorð: lasleiki
2007-02-11
hálsbólga
gerði vart við sig í dag, eiginlega á tónleikunum (var að spila, ekki syngja, þannig að það gerði nú lítið til). Þýddi hins vegar að ég sleppti kóræfingu í kvöld. Eins gott að þetta verði orðið gott í upptökunum um næstu helgi.
tónleikarnir gengu annars bara fínt. Sólistarnir glönsuðu og það var heilmikill kraftur í bandinu líka. Ekki nema minimal klúður, maður biður ekki um meira.
Týndi síðan öðrum uppáhalds eyrnalokknum mínum einhvers staðar áðan. Vona að það hafi verið hér heima :-(

2007-02-08
nibb
ekki að ræða það að ég sé að fá magapestina. Kemur ekki til greina :-O
Efnisorð: lasleiki
2007-02-07
veikindi
ekki ég lengur, en bæði Freyja og Fífa eru heima lasnar, hvor með sína pestina. Heyrði í gær að allt upp í þriðjungur nemenda og kennara sumra skóla væri frá. Ojbara.
Efnisorð: lasleiki