2007-03-04
Agureyri
fórum þangað um helgina, íbúð í láni og skutumst norður, bara tvö. Gerðum ekkert alla helgina. Tótal snilld. Jú, lásum, töluðum saman (gott), þögðum saman (ekki síður gott), töltum um bæinn, borðuðum á Friðriki fimmta (smá rýni bíður morgundagsins, of þreytt núna). Drukkum slatta af rauðvíni, spiluðum Trivial þrisvar (ég tapaði í öll skiptin, urr), fórum á barinn á hótel KEA, þar var trúlega flottasta úrval af Macallan viskíum sem ég hef séð, hótelið snarhækkaði í áliti hjá mér.
Íbúðin er í gamla Tónlistarskólanum, hann er orðinn að mörgum stúdíóíbúðum. Smá breyting frá því að við gistum þar síðast, þá líklega á dýnum í skólastofum með píanóum árið 1994.
Talandi um Trivial, ég fékk örugglega mest evil Trivialspurningu allra tíma: „Frá hvaða framleiðanda voru tennisboltarnir á Wimbledonmótinu 2004?“
Ef einhver veit þetta (án þess að gúggla) skal ég veita verðlaun.
Meira hjá bóndanum en ekki fyrr en annað kvöld, líklegast.

Efnisorð: fjölskyldan, frí
2007-02-28
hótel
alltaf að komast meiri mynd á Ítalíuferðina í sumar. Nú vorum við að panta hótel. Verðum ekki í Róm sjálfri, heldur bæ við ströndina, Fiumicino. Gæti verið heldur svalara þar, þetta er á þokkalega heitum tíma til að vera inni í landi.
Efnisorð: fjölskyldan, frí
2007-02-13
Ítalía
meiri mynd að komast á Ítalíuferðina í sumar, byrjum á 5 daga dvöl í Róm, þá leigjum við bíl og höldum norðaustur yfir Appennínafjöllin og í þessa villu, þar í viku í góðu yfirlæti. Síðan til baka til Rómar og heim.
Veit einhver um góð og ekki gífurlega dýr hótel í Róm?
getum annars ekki beðið :-)
Veit einhver um góð og ekki gífurlega dýr hótel í Róm?
getum annars ekki beðið :-)
Efnisorð: frí