<$BlogRSDUrl$>

2007-05-15

tilraun 

Tókst ekki að setja þetta inn á wp, prófa hér:

Efnisorð: ,

2007-03-07

litli herramaðurinn 

og víólubarnið tekur fyrri hluta útskriftar úr fyrstu Suzukivíólubókinni í hóptíma á eftir. Á að spila heil 3 lög í sóló, er búinn að vera voða duglegur að æfa sig :-D Ég fékk mömmu til að kenna fyrir mig einn tíma á eftir til að komast að hlusta. Mömmur verða nú að vera til staðar á svona stórum stundum.

Reyndar er aðalútskriftin enn eftir, þá skal spilað eitt ógurlega langt og erfitt lag sem ég skil reyndar ekki almennilega hvað er að gera í fyrstu bók, fyrir svona litla krakka. Verður örugglega ekki eins flott hjá honum eins og lögin í dag, sem eru miklu eðlilegri fyrir þennan aldur og getu. Hmmm.

Efnisorð: ,

2007-03-04

Agureyri 

fórum þangað um helgina, íbúð í láni og skutumst norður, bara tvö. Gerðum ekkert alla helgina. Tótal snilld. Jú, lásum, töluðum saman (gott), þögðum saman (ekki síður gott), töltum um bæinn, borðuðum á Friðriki fimmta (smá rýni bíður morgundagsins, of þreytt núna). Drukkum slatta af rauðvíni, spiluðum Trivial þrisvar (ég tapaði í öll skiptin, urr), fórum á barinn á hótel KEA, þar var trúlega flottasta úrval af Macallan viskíum sem ég hef séð, hótelið snarhækkaði í áliti hjá mér.

Íbúðin er í gamla Tónlistarskólanum, hann er orðinn að mörgum stúdíóíbúðum. Smá breyting frá því að við gistum þar síðast, þá líklega á dýnum í skólastofum með píanóum árið 1994.

Talandi um Trivial, ég fékk örugglega mest evil Trivialspurningu allra tíma: „Frá hvaða framleiðanda voru tennisboltarnir á Wimbledonmótinu 2004?“

Ef einhver veit þetta (án þess að gúggla) skal ég veita verðlaun.

Meira hjá bóndanum en ekki fyrr en annað kvöld, líklegast.

Efnisorð: ,

2007-02-28

hótel 

alltaf að komast meiri mynd á Ítalíuferðina í sumar. Nú vorum við að panta hótel. Verðum ekki í Róm sjálfri, heldur bæ við ströndina, Fiumicino. Gæti verið heldur svalara þar, þetta er á þokkalega heitum tíma til að vera inni í landi.

Efnisorð: ,

2007-02-21

yngri afkvæmin 


öskudagur '07
Originally uploaded by hildigunnur.
dj og bionicle á leið í skólann.

Efnisorð:

öskudagur 07 


öskudagur 07
Originally uploaded by hildigunnur.
Fífa, ásamt tveimur vinkonum. Sú í Arwenarbúningnum hannaði og saumaði búninginn sjálf, ekki smá flink.

Efnisorð:

krakkarnir 

farnir að öskudagast niður í skóla. Eiturfúl yfir að það skuli almennt hafa verið skóladagur, þar sem slíkt sé ekki í öllum skólum; Austurbæjarskóli gefur frí klukkan 12 og þá er víst megnið af namminu í búðum á Laugavegi bara búið, komið í safnpoka hjá krökkum sem áttu alveg frí.

Reyndar geta stelpurnar nú ekki kvartað, hafa yfirleitt komið heim með nammi í kílóavís. Veit ekki hvort Finnur fer að safna, Freyja var eitthvað að stræka á að hafa hann með. Hmmm.

Efnisorð:

2007-02-16

ég vildi... 

að allir hlutir væru lifandi, þá gætu þeir farið bara sjálfir á sinn stað.

Finnur snillingur

Efnisorð:

2007-02-15

og mikið 

verður nú gott að fá unglinginn heim annað kvöld :-)

Efnisorð:

búningar 

Bionicle handa drengnum, yngri dóttirin lét sér duga svarta og fjólubláa hárkollu, vonast líklega til að fá nornakápuna systur sinnar lánaða.

gott að þetta er frá.

Efnisorð:

This page is powered by Blogger. Isn't yours?